Hrannar Björn Arnarsson
PERSÓNULEGAR UPPLÝSINGAR
Ég er giftur Heiðu Björgu Hilmisdóttur, forstöðumanni Eldhúss-matsala hjá Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Heiða er Næringarrekstrarfræðingur, MBA frá HR, matarlistarkona og óþreytandi við skriftir um mat. Við eigum fjögur börn: Ísold Emblu Ögn Hrannarsdóttur (f. 17.02.2008), Sólkötlu Þöll Hrannarsdóttur (f. 09.01.2006), Hilmi Jökul Þorleifsson (f. 08.06.1998) og Særós Mist Hrannarsdóttur (f. 19.09.1991).
STARFSREYNSLA
2009 (1. febrúar) - Forsætisráðuneyti: Aðstoðarmaður forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur.
2007 (1 júlí ) - 2008 (31.janúar) : Félagsmálaráðuneyti: Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur. Formaður innflytjendaráðs (ágúst 2007-). Formaður stjórnar Vinnumálastofnunar (nóvember 2007-).
2006 (1.apr) - 2007 (30 júní): Mamma ehf. : Forstöðumaður sölu.
Á vettvangi Dagsbrúnar (eiganda 365 miðla) var ákveðið að sameina á einn stað áskriftarsölu og -þjónustu Dagsbrúnarfyrirtækja við heimilin í landinu. Mamma ehf var stofnað um þennan rekstur og var ég ráðinn forstöðumaður sölu og staðgengill framkvæmdastjóra. Söludeildin sem ég áður rak hjá 365 færðist yfir til Mömmu með þeim verkefnum sem voru þar fyrir, en við þau verkefni bættust sambærileg sala fyrir Vodafone, Securitas og fleiri dótturfyrirtæki Dagsbrúnar. Við uppskiptingu Dagsbrúnar varð Mamma ehf. dótturfélag Teymis ehf. Árið 2007 var Mamma útnefnt eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum VR í árlegri könnun þess.
2005 (15.jan) -2006 (31.mars) : 365 miðlar Sölustjóri lausasölu og áskrifta.
Ráðin sem sölustjóri lausasölu og áskrifta 365 prennt- og ljósvakamiðla í kjölfar sameiningar Íslenska útvarpsfélagsins og Fréttar. Meðal fyrstu verkefna var uppbygging söludeildar í beinni sölu áskrifta og auglýsinga. Smátt og smátt jukust verkefni mín og umfang starfsins og við starfslok í mars 2006 hafði ég yfirumsjón með áskriftarþjónustu, dreifingarmálum og símsvörun og móttökum fyrirtækjanna auk lausasölunnar og áskriftanna sem upphaflega var lagt upp með.
2002 (1. júl) 2005 (14.jan): Edda útgáfa hf. Markaðsstjóri.
Ráðin sem forstöðumaður sölu- og markaðssviðs, með umsjón beinnar sölu og sölu til endursöluaðila fyrir allar deildir Eddu nema klúbba (bækur, kort, tónlist, tímarit, myndbönd). Tónlistin, tímaritin og myndöndin voru síðan seld frá fyrirtækinu, klúbbar færðir undir sölu- og markaðssvið, bókaforlögunum fækkað og fyrirtækið endurskipulagt í upphafi árs 2004. Við breytinguna tók ég við starfi Markaðsstjóra með yfirumsjón allra sölu- og markaðsmál fyrirtæksins.
1999 2002: Reykjavíkurborg - Borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans.
Sem borgarfulltrúi í meirihlutastjórn Reykjavíkurlistans tók ég virkan þátt í stjórn Reykjavíkurborgar um þriggja ára skeið: Sat í Borgarráði (framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar), Formaður Umhverfis- og heilbrigðisnefndar, Formaður skólanefndar Kjalarness, Formaður stjórnar Alþjóðahúss, Varaformaður Fræðsluráðs, Fulltrúi í Jafnréttisnefnd, Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga í Fjölskylduráði, Fulltrúi Samband íslenskra sveitarfélaga í Umhverfisfræðsluráði, Fulltrúi Reykjavíkurborgar í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
Formaður og fulltrúi í fjölda annarra stefnumótunar- og verkefnanefnda.
1995 : Þjóðvaki Kosningastjóri.
Stjórnaði kosningabaráttu þjóðvaka sem bauð fram um allt land. Þriggja mánaða vinnutörn með öllu því sem tilheyri alþingisframboði um allt land.
1989 - 1999: Eigin rekstur - Framkvæmdastjóri.
Annar stofnandi og eigandi Arnarsson og Hjörvar sf sem sérhæfði sig í beinni sölu bóka og áskrifta fyrir tímarit og bókaklúbba. Í kjölfar fjárhagsþrenginga og nauðarsamninga yfirtók Markaðsmenn ehf reksturinn, en félagið var í 100% eigu minni og undir minni stjórn þar til núverandi eigendur keyptu keyptu 5/6 hlutafjár af undirrituðum árið 1998 í kjölfar kjörs míns til borgarstjórnar.
1988-1989: Þjóðlíf ehf. - Sölustjóri.
Annaðist sölu áskrifta og auglýsinga í fréttatímaritið Þjóðlíf.
1985 - 1988: Ýmis sölustörf.
Samhliða námi og á sumrum starfaði ég við sölumennsku hjá ýmsum fyrirtækjum, (Svart á hvítu, Mál og menning, Gulabókin, Félagsútgáfan, Þjóðviljinn ofl.) aðalega við bóksölu, auglýsingasölu og áskriftasölu.
MENNTUN
2008 MBA, Háskóli Íslands
2005 Viðskipta- og rekstrarnám, Endurmenntun Háskóla Íslands
1989 Hagnýt fjölmiðlun, Nordiska Folkhögskolan Kungalv, Svíþjóð
1988 Stúdentsprót af Náttúrufræðibraut, Menntaskólinn í Hamrahlíð
FÉLAGSSTÖRF
2003 Formaður kosningastjórnar Samfylkingarinnar í Reykjavík
2001 Forseti Skáksambands Íslands og í stjórn þess í 5 ár (2 sem forseti)
1988 Formaður Útvarpsfélags framhaldsskólanema
1987 Formaður Félags framhaldsskólanema
1987 Forseti Nemendafélags MH
1985 Formaður Æskulýðsfylkingar Alþýðubandalagsins í Reykjavík
Auk ofangeindra forystustarfa og þeirra sem þegar var getið á vettvangi Reykjavíkurborgar, hef ég m.a. setið í stjórnum eftirfarandi félaga:
Æskulýðsfylking AB, Miðstjórn AB, Stjórn Nýs vettvangs, Stjórn Þjóðvaka, Stjórn Regnbogans (félag Reykjavíkurlistans), Stjórn Taflfélags Reykjavíkur, Flokksstjórn Samfylkingarinnar, Stjórn Skáksambands Íslands, Stjórn Grósku ofl.